Schindler 2500
Lyftur sem renna ljúflega milli hæða og af öryggi skipta höfuðmáli þegar í hlut á fólk í sjúkrarúmum eða í hjólastólum. Aðgengi í Schindler 2500 lyftuna og úr henni er án hindrana fyrir sjúklinga. Hún fer sinna ferða hljóðlát og notaleg og stendur fyllilega undir væntingum sem traust og áreiðanleg.
Schindler 2500 er vel úthugsaður
Við höfum þróað mjög hagnýta lyftu fyrir þægilegan flutning á sjúklingum og öðrum sem þurfa á umönnun að halda. Þetta krefst mikillar nákvæmni. Fólk verður að geta stigið í og úr lyftunni án vandræða og komist fljótt og þægilega á áfangastað.
Þær líða um, hratt og mjúklega
Lyftur af gerðinni Schindler 2500 eru hannaðar og framleiddar með fólk sem þarf á góðri umönnun að halda í huga. Sjúkir þurfa ekki að bíða lengi eftir þeim því að þær fara um hratt og mjúklega. Lyftudyrnar opnast og lokast án tafar og svo mjúklega líða þær um að farþegar skynja jafnvel ekki að þær séu á ferð.
Þær eru auðveldar í notkun og áreiðanlegar
Schindler 2500 lyftan er háþróuð listasmíð. Hún er byggð úr forsamsettum íhlutum og þess vegna er fljótlegt að setja hana upp. Velja má um tvenns konar stýrikerfi eftir því hvort um víralyftu eða vökvalyftu er að ræða en bæði kerfin eru hönnuð með hámarks orkunýtingu í huga. Þessi lyfta er bæði sterkbyggð og traust.
Þær eru rúmgóðar
Ekki er nóg með að Schindler 2500 lyftur geti flutt allar stærðir af rúmum. Þær eru líka svo rúmgóðar að gott rými er að auki fyrir lækna, hjúkrunarfólk eða aðra sem kunna að fylgja sjúklingi. Þær fara líka létt með læknisbúnað jafnvel þó að hann sé þungur og fyrirferðarmikill.
Stærðir
Einkenni | Upplýsingar | Einkenni | Upplýsingar |
---|---|---|---|
Burðargeta | 1275 - 2500 kg, 17 - 33 manna | Klefabreidd | 1100 - 2300 mm í 50 mm þrepum |
Hraði | 0,63 - 1,6 m/s | Klefalengd | 1450 - 3500 mm í 50 mm þrepum |
Lyftihæð | 65 m | Klefahæð | 2100 - 2500 mm í 100 mm þrepum |
Hæðir | 21 | Hurðabreidd | 800 - 2300 mm í 100 mm þrepum |
Klefahurðir | 1 eða 2 (gegnumgeng) | Hurðahæð | 2000 - 2400 mm í 100 mm þrepum |
Stærðir á lyftu og stokk
Þar sem þessi lyftugerð býður upp á mjög breytilegar stærðir þarf að skoða óskir verkkaupa og hönnuða varðandi stærðir á lyftu, hurðum og stokk. Hafið samband við okkur og við aðstoðum við val.
Niðurhal
Uppfærðu lyftuna þína
Endurnýjun
Ef uppfæra þarf lyftuna til samræmis við nýjustu staðla og til að bjóða betri þjónustu og þægindi fyrir notendur má treysta búnaðinum frá Schindler.
Áfangastaðastýring
PORT-tæknin umbyltir hugsun við bestun á umferðarflæði í gegnum byggingu og samtímis boðið er upp á persónulega þjónustu og aðgangsstýringu.
Pakkar
Schindler pakkarnir okkar eru hannaðir til að uppfæra lyftuna með ýmsum valkostum fyrir þægindi, aðgengileika eða hagkvæmni.